20/05/2026
✨ Uppskriftadagur ✨
Graflaxvefjur með rjómaosti eru fullkomnar sem snarl, í saumaklúbbinn, á veisluborðið eða sem léttur forréttur.
Mjúkur rjómaosturinn með smá sinnepi og fersku dilli mynda klassíska og ljúffenga blöndu fyrir graflaxinn. Gúrka, rauðlaukur og klettasalat gefa svo ferskleikann sem fullkomnar bitann.
Létt, ferskt og einstaklega bragðgott.
Það sem þú þarft:
🌯 Hveiti-tortilla eða heilkornstortilla
🧀🌿 Rjómaostur með smá sinnepi og dilli
🐟 Þunnar sneiðar af graflaxi
🥒 Fersk gúrka í strimlum
🧅 Rauðlaukur í örþunnum sneiðum
🥬 Smá klettasalat