Tariello

Tariello Tariello Sælkeravara Ítölsk matargerðarlist er ein sú elsta í heiminum. Einnig erum við með vörur í verslunum Krónunnar. Buon appetito!

Með sérvalið íslenskt kjöt og ástríðu fyrir mat, töfrum við fram matargerð með aldagömlum hefðum, sem borist hafa frá kynslóð til kynslóðar. Við bjóðum uppá gott úrval af sælkeravörum, flestar unnar án rotvarnar- og aukaefna, sem tryggir einstök gæði og ferskleika. Til þess að smakka góðgætið okkar þá er um að gera að heimsækja: Frú Laugu Laugalæk, Melabúðina Hagamel, Bergsson sælkeraverslun, Fjarðarkaup og Hagkaup.

Við verðum á Matarmarkaður Íslands/ Artisan Food Fayre i Hörpu um helgina með goðgæti eins og Salami..Guanciale..ólifur ...
11/12/2025

Við verðum á Matarmarkaður Íslands/ Artisan Food Fayre i Hörpu um helgina með goðgæti eins og Salami..Guanciale..ólifur oliu..pasta og margt fleira.

27/11/2025

Ný sending af gómsætu Salami komið í verslanir.

Salamigerð á sér langa sögu í matarhefð ítala. Á bak við salami Tariello býr þekking og handverk. Salamipylsur Tariello eru unnar úr 100% íslensku kjöti, aukaefni eru í algeru lágmarki og í sumum tilfellum engin, sem gerir salami pylsurnar einstakar á íslenskum markaði. Við framleiðsluna er notast við þurrverkun og náttúrulega gerjun. Því getur ferlið tekið allt frá 2 til 4 mánuðum frá byrjun til enda.
Þegar notast er við þurrverkun skiptir rétt tegund myglu höfuðmáli en myglan sér til þess að mynda vörn gegn óvinveittum bakteríum og óæskilegum tegundum af myglu. Að notast við myglu í matargerð er aldargömulaldagömul aðferð við osta- og pylsugerð. Það tekur um 2-3 daga fyrir myglu að byrja að myndast á yfirborði pylsunnar. Mygla er lykilatriði við þurrverkun en hún t.d. hjálpar til við að halda réttu rakastigi þannig að þurrktíminn haldist jafn og langur sem síðan gefur mun betra og dýpra bragð.
Það eru til mun fljótvirkari aðferðir til að verka salami og ógrynni af aukaefnum til að hraða ferlinu en við kjósum frekar að fara lengri leiðina sem útheimtir meiri þolinmæði en gefur að okkar mati mun betri gæði og bragð.Þess má geta að Tariello vann til gullverðlauna fyrir Rauðvínssalami-Tommasi, á Matarhátíðinni á Hvanneyri árið 2019 þar sem keppt var um íslandsmeistaratitilinn í matarhandverki.
Buon appetito!

Melabúðin, verslun sælkerans Hagkaup Fjarðarkaup Krónan Matland

12/08/2025
Við erum búin að fylla á út um allan bæ.Grilla...steikja. ..baka ....
29/07/2025

Við erum búin að fylla á út um allan bæ.
Grilla...steikja. ..baka ....

Address

Midkot
Þykkvibær
851

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tariello posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Tariello:

Share