07/08/2023
Áskriftapakkar 🥦🥬👩🌾
Við í Vallakoti bjóðum upp á tvær mismunandi stærðir af áskriftapökkum af grænmeti beint frá býli fyrir íbúa í Þingeyjarsveit og á Húsavík.
Pakkarnir verða afhentir einu sinni í viku og í boði er heimsending eða sótt.
Litli pakkinn. Verð 4000kr á viku
Stóri pakkinn. Verð 6000kr á viku
Heimsendingagjald 500kr sem bætist ofaná pakkaverðið.
Fyrsta sending verður þriðjudag 15.ágúst/miðvikudag 16. ágúst. Í byrjun verða fáar tegundir en smá saman bætist við flóruna þegar líður á uppskerutímann.
Takmarkaður fjöldi í boði. Fyrst koma, fyrst fá.
Pantanir fara í gegnum [email protected] eða í síma 7827682.
Fram þarf að koma nafn, símanúmer, stærð pakka, heimsent eða sótt og heimilisfang (ef heimsent).
Bestu grænmetiskveðjur,
Vallakots Teymið.