Fiskbúð Húsavíkur

Fiskbúð Húsavíkur Fiskvinnsla, fiskbúð

Erum að steikja fiskibollur, Alex er niður í fish and chips að hamast við að útbúa lífsnæringunaKíkja við, 2.000 kall/kg
02/04/2026

Erum að steikja fiskibollur, Alex er niður í fish and chips að hamast við að útbúa lífsnæringuna

Kíkja við, 2.000 kall/kg

22/02/2026

Hugleiðingar um fiskverð

Við í Fiskbúð Húsavíkur höfum haldið verulega aftur af okkur hvað söluverð á fiski varðar. Má segja að það sé "gamall draugur" sem á rætur sínar að rekja til þess yndislega fyrirkomulags að þeir sem komu á bryggjuna meðan á löndun stóð fengu "í soðið" en nú er allt okkar keypt og greitt fyrirfram.

Mér datt í hug að gera taka stikkprufu , gera smá verðkönnun á algengum stærðum af þorski á fiskmarkaði.

Til viðmiðunar skoðaði ég tvo flokka af óslægðum þorski þ.e. "mþ smár 1,3-1,7" og "5+" þar sem tölurnar eiga að segja til um ca. þyngd á fiski. Öll verð hér að neðan eru frá samantekt á síðu reiknistofu fiskmarkaðanna RSF og eru meðaltöl viðkomandi tímabils, ekki bara handvalin hæstu verð.

Seinnipart árs (1. júlí-31. des) 2023 var "mþ smár" á 261 kr./kg.
Sama tímabil var verðið fyrir "5+" 535 kr./kg.

Seinnipart árs(1. júlí-31.des) 2025 var "mþ smár" á 461 kr./kg.
Sama tímabil var "5+" að seljast á 613 kr./kg.

Frá áramótum til dagsins í dag "mþ smár" verið á 532 kr./kg.
og 5+ 701 kr./kg.

Það sem gerst hefur er að smærri fiskurinn hefur hækkað gríðarlega og nú er allur fiskur á háu verði og bil milli flokka hefur minnkað mjög mikið.

"mþ smár" hefur frá 2023 - 2026 hækkað um 104%
"5+" hefur á sama tíma hækkað um 31%

Ég vildi koma þessu á framfæri hér. Við munum um næstu mánaðamót verða að endurskoða öll okkar verð og hækka þau verulega, því miður. Vona að þeir sem rýna í þessar tölur átti sig á því að það er óhjákvæmilegt.

Vorum að skera skötuna til í gær, hún er andskoti álitleg sterk og svo STERK.Verður hægt að nálgast hana frá því eftir h...
18/12/2025

Vorum að skera skötuna til í gær, hún er andskoti álitleg sterk og svo STERK.

Verður hægt að nálgast hana frá því eftir hádegi á morgunn meðan birgðir endast

2.000 kr./kg.

Address

Héðinsbraut 4, Norðurþing
Húsavík
640

Telephone

+3547750744

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fiskbúð Húsavíkur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category