Fjarðarkaup

Fjarðarkaup Fjarðarkaup - Ein-stök verslun Hana má rekja aftur til ársins 1973 þegar hlutafélagið Fjarðarkaup var stofnað. Bresk herskip sigldu á íslensk varðskip. júlí 1973.
(484)

Sagan

Í hrauninu ofan við Engidalinn, innan bæjarmarka Hafnarfjarðar, stendur stórt verslunarhús merkt Fjarðarkaup. Þarna hefur verið rekin verslun síðan 1982 en saga fyrirtækisins er mun lengri. Markmiðið með félaginu var að stofnsetja og reka lágvöruverðsverslun við Trönuhaun í Hafnarfirði. Fyrirkomulagið var farið að ryðja sér til rúms hér á landi og hugmyndafræðin var sú að kosta sem minnstu til við reksturinn svo stilla mætti verðlagi í hóf. Vörunum var komið fyrir á brettum á búðargólfinu, þær voru ekki einu sinni teknar upp úr kössunum. Fyrst í stað var úrvalið takmarkað, ekkert kjöt, engin mjólk, enginn fiskur. Enda ekki nema fyrir útvalda að fá að versla með slíkar vörur. Þær voru seldar í sérstökum verslunum; kjötbúðinni, fiskbúðinni, mjólkurbúðinni. En í áranna rás fengust leyfi til þess að bæta þessum vörum við í Fjarðarkaupum eins og öðrum matvöruverslunum og smám saman stækkaði verslunin og sprengdi utan af sér hvert rýmið af öðru. Einhvern tímann sagði einhver einhvers staðar að verslunin hafi verið stækkuð alls 11 sinnum - en það verður ekki selt dýrara en það var keypt. Þó alls ekki undir kostnaðarverði...

En áður en lengra er haldið gæti verið áhugavert að athuga hvað var um að vera í íslensku samfélagi um þær mundir sem Fjarðarkaupum var hleypt af stokkunum árið 1973? Jú, ýmsar fleiri stórfréttir bárust landsmönnum, meðal annarra þessar: Þá gaus í Vestmannaeyjum. Landhelgisgæslan klippti trollin í gríð og erg aftan úr breskum togurum og skaut á þá úr fallbyssu í "blóðugu" þorskastríðinu. Bankastjórn Seðlabankans hækkaði stofngengi íslenskrar krónu um 6% til að draga úr verðbólgu. Þetta var í fyrsta skipti sem þetta var gert síðan 1924. Margrét Danadrottning kom í heimsókn. Nixon og Pompidou hittust á Íslandi til skrafs og ráðagerða. Menntamálaráðuneytið auglýsti að Z væri afnumin og Geir Hallgrímsson varð formaður Sjálfstæðisflokksins. Stofnendurnir
Stofnendur og fyrstu eigendur Fjarðarkaupa hf. voru annars vegar hjónin Ingibjörg Gísladóttir og Sigurbergur Sveinsson og hins vegar Bjarni Blomsterberg og kona hans Valgerður Jónsdóttir. Hin fyrrnefndu, Ingibjörg og Sigurbergur, keyptu hlut Bjarna og Valgerðar árið 1993 og hafa síðan verið einu eigendur verslunarinnar. Synirnir tveir, Sveinn og Gísli, og önnur dóttirin, Hjördís, starfa við fyrirtækið ásamt föður sínum en Ingibjörg lést í desember 2009. Kolahagfræðin
Sigurbergur dvaldi að Húsum í Selárdal frá því hann var 6 ára til 15 ára aldurs. Frumhugmyndin að nafngift kolahagfræðinnar, en það hugtak er gjarnan notað til að lýsa hugmyndafræðinni í rekstri Fjarðarkaupa, er ættuð þaðan. Hjónin þar voru mjög aðhaldssöm og allt var nýtt í þaula. Ekkert var keypt sem ekki var til inneign fyrir í Kaupfélaginu. Fötin voru stagbætt og notuð nánast þar til þau urðu að dufti og mór var tekinn upp til húsh*tunar og eldamennsku í stað þess að kaupa kol. Sigurbergur man til dæmis eftir því að þegar hann var 8 eða 9 ára hafði reikningurinn frá Kaupfélaginu borist og uppgjörið var þannig að eigendur Húsa áttu inni 1.000 krónur. Þá var svolítill rígur milli bæja og á næsta bæ, prestsetrinu Selárdal, bjuggu hjón sem virtust hafa talsvert meira umleikis en Húsamenn. Þetta sama ár hljóðaði þeirra reikningur frá Kaupfélaginu upp á 3.000 krónur í mínus. Og þá sagði Ingibjörg fóstra Sigurbergs svolítið sem hann gleymir aldrei: "Ja, það er ekki nema furða þótt þau séu í mínus því þau kynda svo mikið með kolum." Sigurbergur og Bjarni Blomsterberg
Örlögin höguðu því þannig að árið 1973 lágu leiðir þeirra Sigurbergs og Bjarna Blomsterberg saman en Bjarni hafði um skeið rekið verslunina Hólsbúð við Hringbraut í Hafnarfirði. Sigurbergur hafði séð um bókhaldið fyrir Hólsbúð í 3-4 ár, allt þar til Bjarni hætti með búðina. Ekki leið á löngu þar til Bjarni kom að máli við Sigurberg á ný og spurði hvort þeir ættu ekki bara að stofna saman lágvöruverðsverslun. Þá var starfsemi Hagkaupa hafin á svipuðum nótum. Sigurbergi þótti hugmyndin góð, hann hefði þá bara aðeins meira að gera - en ætlaði þó ekki sérstaklega að fara að standa í einhverju "búðarveseni". En "búðarvesen" varð úr og þeir opnuðu ásamt eiginkonum sínum verslunina Fjarðarkaup að Trönuhrauni 8 þann 7. Gísli, sonur Sigurbergs og Ingibjargar, og Héðinn vinur hans, nú tannlæknir, gengu um bæinn og dreifðu miðum þar sem þessi tímamót voru tilkynnt. Þeir bræður, Gísli og Sveinn, voru þá ekki háir í loftinu en létu þó ekki sitt eftir liggja í verslunarstörfunum og þeim hjónum er minnisstætt þegar ungur snáði, sem hafði séð Gísla vera eitthvað að bardúsa í búðinni, kom til þeirra og spurði: "Hvað þarf maður að borga mikið fyrir að vinna hérna?"

Ekki stóð á Hafnfirðingum þegar Fjarðarkaup voru opnuð. Viðtökurnar voru geysilega góðar og fyrsta föstudag eftir opnun var búðin troðfull. Með því að afla sér og viðhalda tryggu sambandi við viðskiptavini sína hefur eigendunum tekist að halda rekstrinum á þessum nótum. Fjarðarkaup eru enn að fyllast af ánægðum viðskiptavinum.

Ragga Nagli verður með ráðgjöf og fræðslu um heilsuvörur, bætiefni, matvöru og allskonar annað heilsutengt í Fjarðarkaup...
09/09/2026

Ragga Nagli verður með ráðgjöf og fræðslu um heilsuvörur, bætiefni, matvöru og allskonar annað heilsutengt í Fjarðarkaup fimmtudaginn 10. september kl 14:30-16:30. Komdu og fáðu einstaklingsmiða ráðgjöf um hvað hentar þér og þínum markmiðum.

💚💚 HVERN LANGAR Í FALLEGA GJÖF FRÁ BETTERYOU 💚💚🍃🍃HEILSUDAGAR Í FJARÐARKAUP🍃🍃 MERKTU VIN OG ÞÚ ERT KOMIN/NN Í POTTINN 💚💚H...
09/09/2026

💚💚 HVERN LANGAR Í FALLEGA GJÖF FRÁ BETTERYOU 💚💚

🍃🍃HEILSUDAGAR Í FJARÐARKAUP
🍃🍃 MERKTU VIN OG ÞÚ ERT KOMIN/NN Í POTTINN 💚💚

Heilsuhillan BetterYou á Íslandi

♥️ ATH við biðjum aldrei um persónu-eða kortaupplýsingar.

Heilsudögum í Fjarðarkaup lýkur 12. september, þannig að nú eru síðustu forvöð að nýta sér tilboðin 🍎💚Á Heilsudögum eru ...
09/09/2026

Heilsudögum í Fjarðarkaup lýkur 12. september, þannig að nú eru síðustu forvöð að nýta sér tilboðin 🍎💚

Á Heilsudögum eru yfir 1.000 hollustuvörur á afslætti. Tilvalið tækifæri til að fylla á skápana, prófa eitthvað nýtt eða næla sér í uppáhaldsvörurnar á betra verði.

Kíktu við áður en Heilsudögum lýkur og gerðu góð kaup! 🛒

💚💚 HVERN LANGAR Í 💚💚 Glæsilega körfu frá LEANBODY.IS ?🍃 Merktu vin og vinningurinn gæti orðið þinn 💚💚♥️ATH við biðjum al...
08/09/2026

💚💚 HVERN LANGAR Í 💚💚

Glæsilega körfu frá LEANBODY.IS ?

🍃 Merktu vin og vinningurinn gæti orðið þinn 💚💚

♥️ATH við biðjum aldrei um korta - eða persónuupplysingar

HVERN LANGAR Í?💚💛🧡❤️🩷🤎💚 Merktu vin og heppnin gæti orðið með þér💚❤️ ATH Við biðjum aldrei um korta-eða persónuupplysinga...
02/09/2026

HVERN LANGAR Í?💚💛🧡❤️🩷🤎

💚 Merktu vin og heppnin gæti orðið með þér💚

❤️ ATH Við biðjum aldrei um korta-eða persó
nuupplysingar

HVERN LANGAR Í 💚💚 FULLAN POKA AF LÝSI 💚💚💚 HEILSUDAGAR Í FJARÐARKAUP OG OKKUR LANGAR AÐ GLEÐJA VINI MEÐ ÞESSARI GLÆSILEGU...
24/08/2026

HVERN LANGAR Í 💚💚 FULLAN POKA AF LÝSI 💚💚

💚 HEILSUDAGAR Í FJARÐARKAUP OG OKKUR LANGAR AÐ GLEÐJA VINI MEÐ ÞESSARI GLÆSILEGU GJÖF FRÁ LÝSI💚

💚 Merktu vin og þú ert komin/nn í pottinn

♥️ ATH VIÐ BIÐJUM ALDREI UM PERSÓNU-eða KORTAUPPLYSINGAR♥️

24/08/2026

Heilsudagar í Fjarðarkaup 💚
Yfir 1.000 hollustuvörur á tilboði til 12. september.

19/08/2026

Heilsudagar í Fjarðarkaup 🍎🫐

Á meðan heilsudagar standa yfir bjóðum við yfir 1.000 hollustuvörur á frábærum tilboðum, svo það er tilvalið að fylla körfuna af gæðavörum á góðu verði.

Það verður nóg um að vera hjá okkur:

🥗 1.000+ hollustuvörur á tilboði
🍴 Vörukynningar í verslun
🎁 Glæsilegir vinningar á samfélagsmiðlum
🥑 Einfaldar og gómsætar uppskriftir

Kíktu við og skoðaðu úrvalið – Það er alltaf tími fyrir hollustu 💚

www.fjardarkaup.is/heilsudagar-fjardarkaup

❣️❣️❣️
18/08/2026

❣️❣️❣️

Address

Hólshraun 1
Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 09:00 - 18:00
Tuesday 09:00 - 18:00
Wednesday 09:00 - 18:00
Thursday 09:00 - 18:30
Friday 09:00 - 19:00
Saturday 10:00 - 16:00

Telephone

+3545553500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fjarðarkaup posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Fjarðarkaup:

Shortcuts

Share

Category