Fiskeldi á Íslandi

Fiskeldi á Íslandi Vefur um fiskeldi á Íslandi og efnahagsleg, félagsleg og umhverfisleg áhrif þess.

23/01/2025

Nýbakaður alþingismaður, skáldið Sigmundur Ernir Rúnarsson, fór mikinn á dögunum í skrifum sínum á vefsíðu Eyjunnar/DV um fyrirhugað sjókvíaeldi í Seyðisfirði.

Til hamingju!
02/11/2024

Til hamingju!

Nú þegar laxveiðisumri er lokið liggur fyrir að það var besta sumar í veiði frá árinu 2018. Samkvæmt upplýsingum frá Hafrannsóknastofnun var ekki tilkynnt um neinn eldislax í laxveiðiám landsins þetta sumarið.

Þessi góðu tíðindi gefa okkur væntingar um að veiði á villtum laxi og ábyrg uppbygging laxeldis geti vel farið saman.

Höldum áfram að vanda okkur.

Hér er farið yfir skattheimtu á Íslandi af sjókvíaeldi á einfaldan hátt.
26/10/2024

Hér er farið yfir skattheimtu á Íslandi af sjókvíaeldi á einfaldan hátt.

Það var merkilegt að fylgjast með fréttum um þing ASÍ þar sem norskur hagfræðingur, Karen Ulltveit Moe, flutti erindi um skattheimtu á fiskeldi í Noregi. Í sjálfu sér var ekkert við erindið hennar að athuga, enda margt áhugavert sem þar kom fram. Það sem vakti athygli var hin ....

18/10/2024

Á nýafstöðnu þingi ASÍ var rætt um að fara norsku leiðina við gjaldtöku af fiskeldi. Íslensk fiskeldisfyrirtæki greiddu hins vegar átta sinnum hærri fjárhæð í auðlindagjald á árinu 2023, en þau hefðu greitt samkvæmt norsku leiðinni.

Arctic Fish er að ná góðum árangri í Bandaríkjunum
13/10/2024

Arctic Fish er að ná góðum árangri í Bandaríkjunum

Full þota af laxi til Bandaríkjanna
Vaxandi eftirspurn er eftir laxi frá Íslandi inn á Bandaríkin og þá einnig með flugi. Til að mæta þessari eftirspurn erum við að senda fulla þotu af laxi beint inn á JFK í New York á morgun. Þannig verða 40 tonn af laxi sem slátrað var í Bolungarvík í dag komin í búðir, jafnvel á Manhattan, um helgina.

Meðf. mynd er fengin að láni frá Icelandair cargo sem flytur fiskinn fyrir okkur beint í Stóra Eplið.

Kalvík hefur hlotið vottun sem var þróuð af Alþjóðal­ega nátt­úru­vernd­ar­sjóðnum (World Wild­li­fe Fund) og vott­ar fr...
08/10/2024

Kalvík hefur hlotið vottun sem var þróuð af Alþjóðal­ega nátt­úru­vernd­ar­sjóðnum (World Wild­li­fe Fund) og vott­ar fram­lag fram­leiðenda um sjálf­bæra og ör­ugga starfs­hætti, dýra­vel­ferð og vernd­un nærliggj­andi vist­kerfa. Fyrir var Kaldvík komin með vottun frá Whole Foods Market

Fiskeldisfyrirtækið Kaldvík á Austfjörðum hlaut fyrr í mánuðinum ASC-vottunina fyrir laxeldi sitt í sjókvíum. ASC-vottunin (Aquaculture Stewardship Council), er ein kröfuharðasta gæða- og umhverfisvottunin í matvælaiðnaðinum.

Það gengur vel hjá Háafelli
05/10/2024

Það gengur vel hjá Háafelli

Rúmlega 6.000 tonnum hefur verið slátrað úr kvíum Háafells í Vigurál í Ísafjarðardjúpi síðustu 11 mánuði. Ætla má að útflutningsverðmætið sé um 7 milljarðar króna, að því er fram kemur í frétt hjá www.bb.is

Í úttekt á fastaeignaverði um landið kemur þetta fram:  „Hækkanirnar hafa þó verið mestar á Vestfjörðum og er það einkum...
19/09/2024

Í úttekt á fastaeignaverði um landið kemur þetta fram: „Hækkanirnar hafa þó verið mestar á Vestfjörðum og er það einkum rakið til uppgangs í atvinnulífinu vegna sjókvíaeldis. Hvergi á landinu hefur fasteignaverð hækkað meira en í Bolungarvík (210), um heil 32,1 prósent. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hækkunin er mest í Bolungarvík, bæjarfélagi sem hefur barist við að koma íbúafjöldanum yfir 1000 þúsund manns um langt skeið.“

Ef frá er talið eitt hverfi á Akureyri þá er Hveragerði sá staður á landsbyggðinni þar sem fasteignaverð er hæst. Hvergi hefur fasteignaverð þó hækkað meira en í Bolungarvík. Þetta má sjá í vefsjá matssvæða hjá Húsnæðis og mannvirkjastofnun. Það er byggt á fasteigna...

Laxeldi fylgja störf. Það er áhugavert, fyrir þá sem hafa gaman af því að reikna, að níu störf á Djúpavogi er hlutfallsl...
29/08/2024

Laxeldi fylgja störf. Það er áhugavert, fyrir þá sem hafa gaman af því að reikna, að níu störf á Djúpavogi er hlutfallslega jafn mikið og rúmlega 2.100 störf í Reykjavík

Níu störf hafa skapast á Djúpavogi við fóðrun alls fiskeldis á Austfjörðum.

Það er áhugavert, fyrir þá sem ekki þekkja, að sjá hvernig lúsatalning fer fram. Blaðamenn ILaks slógust í för með Arcti...
03/06/2024

Það er áhugavert, fyrir þá sem ekki þekkja, að sjá hvernig lúsatalning fer fram. Blaðamenn ILaks slógust í för með Arctic Fish til Dýrafjarðar. Ástandið var gott og engar lýs.

Vi fikk være med da Arctic Fish sjekket ståa på fisken. Som i Norge strekker høye, snøkledde fjell seg opp fra fjordene. Til forskjell fra Norge er det ingen trær i sikte. Her kan man se destinasjonen lenge før man kommer frem. Dagens mål: Et oppdrettsanlegg i Dyrafjordur, utenfor Arctic Fis...

Hér er mjög áhugaverð síða en þar er hægt að sjá botndýralíf undir sjókvíum sem tekið er við ýmsar aðstæður. Áður en eld...
27/03/2024

Hér er mjög áhugaverð síða en þar er hægt að sjá botndýralíf undir sjókvíum sem tekið er við ýmsar aðstæður. Áður en eldi hefst á eldissvæði til að meta hvert grunn ástandið er á eldissvæði (grunn sýnatökur). Þegar eldi hefur náð 75% af leyfilegum lífmassa eldissvæðis (hámarkssýnatökur). Þegar hvíldartíma eldissvæði líkur, venjulega 3 mánuðum eftir að slátrun líkur (hvíldarsýnatökur). Ekki er heimilt að setja fisk í sjókvíar fyrr en ljóst er að sjávarbotninn hefur jafnað sig.

Vöktun með fjölbreytni

Íbúar í Vesturbyggð hafa ekki verið fleiri í tvo áratugi. Börn, yngri en 5 ára, hafa ekki verið fleiri í Vesturbyggð síð...
27/03/2024

Íbúar í Vesturbyggð hafa ekki verið fleiri í tvo áratugi. Börn, yngri en 5 ára, hafa ekki verið fleiri í Vesturbyggð síðan um aldamótin. Það skýrir vonandi fyrir Jóni af hverju verið er að byggja nýja deild við leikskólann í bænum. Það er ekki gert fyrir alla útlensku karlana. Stækkun leikskólans er reyndar fjármögnuð að hluta með fjármunum úr fiskeldissjóði, sem þessi sömu hræðilegu fiskeldisfyrirtæki borga og munu að líkindum borga yfir milljarð
króna í á þessu ári. En Jón vill ekki nefna þetta.

„Eins og annar þvættingur í grein Jóns, er þessi aðdróttun án nokkurs rökstuðnings eða sannana.“

Address

Borgartún 35
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00
Saturday 08:30 - 16:30

Telephone

+354 699 2691

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fiskeldi á Íslandi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Fiskeldi á Íslandi:

Share