10/11/2020
Margt hefur verið í gangi hjá mér síðan ég stofnaði Hörpukökur 😃 Núna er ég búin að vera að vinna í því að koma vörulínu í verslanir sem einfaldar fólki að baka frá grunni heima. Við erum byrjuð að selja 3 tegundir af heimabaksturspökkum í Krónunni Lindum og Selfossi en a nýju ári mun vöruúrvalið aukast. Með því að versla pakkana okkar þá færðu nákvæmlega það hráefni sem þarf í uppskriftina auk bökunarpappírs og stuðlar þannig að minni matarsóun. Hugmyndin af Bökum saman vaknaði í eldhúsinu heima þar sem ég baka mikið með guttunum mínum þremur, það að baka frá grunni styður við heimilisfræðikennslu í skólanum og bíður upp á dásamlegar gæðastundir.
Endilega ef þið hafið áhuga á því að vita meira og fylgjast með vöruþróun Bökum saman þá fer heimasíða í loftið um helgina og endilega fylgið okkur á Facebook eða instagram Bökum saman🥰 kær kveðja Harpa