HYALIN Reykjavík

HYALIN Reykjavík Frönsk sælkeraverslun / Épicerie fine / Gourmet food store HYALIN is located in the heart of the city of Reykjavík, Iceland. Skólavörðustígur 4A, 101 Reykjavík.

05/05/2026

Vantar þig hugulsama gjöf fyrir dýrmæta mömmu, án fyrirhafnar? Kíktu þá á vefverslun okkar, þar sem við höfum tekið saman nokkrar gómsætar hugmyndir að mæðradagsgjöf. Þú þarft bara að smella á það sem þér líst best á og færð það sent heim!

Vantar þig hugulsama gjöf fyrir dýrmæta mömmu, án fyrirhafnar? Kíktu þá á vefverslun okkar, þar sem við höfum tekið sama...
05/05/2026

Vantar þig hugulsama gjöf fyrir dýrmæta mömmu, án fyrirhafnar? Kíktu þá á vefverslun okkar, þar sem við höfum tekið saman nokkrar gómsætar hugmyndir að mæðradagsgjöf. Þú þarft bara að smella á það sem þér líst best á og færð það sent heim!

Bonne fête maman! Mömmur eru sannarlega magnaðar. Hvernig væri að gefa þeim smá dekur fyrir bragðlaukana á mæðradaginn til að sýna þeim hversu dýrmætar þær eru? Það þarf ekki að vera flókið – sælkeravörur Hýalín segja allt sem segja þarf; ilmandi te og súkkulaðitruff...

Ný heimasíða HYALIN er komin í loftið — loksins!👉 https://www.hyalin.is/Við erum ótrúlega ánægð að geta loksins opnað ný...
17/04/2026

Ný heimasíða HYALIN er komin í loftið — loksins!

👉 https://www.hyalin.is/

Við erum ótrúlega ánægð að geta loksins opnað nýja vefverslun HYALIN og gert úrvalið okkar aðgengilegra fyrir sælkera nær og fjær.

Á síðunni má nú finna hluta af þeim vörum sem einkenna HYALIN: ólífuolíur, krydd, te, sultur, súkkulaði, kex, sardínur, hunang og ýmsar aðrar lystisemdir sem við höfum svo gaman af að velja inn í búðina.

Að því sögðu þá á enn eftir að gera margt fyrir vefinn — við munum halda áfram að bæta við vörum, fínpússa síðuna og gera upplifunina enn betri á næstu vikum og mánuðum.

Endilega kíkið við, flettið í gegnum úrvalið og deilið síðunni með einhverjum sem gæti haft gaman af.

www.hyalin.is

Takk fyrir allan hlýhuginn, stuðninginn og áhugann við kaupmennina á horninu. Það skiptir okkur öllu máli.

Einstakt úrval hráefna, sælkeravarnings og gjafavöru.

NÝBURAGJÖF HÝALÍN – Fyrir allra minnstu sælkerana 🍼 🌞// Skráning á www.hyalin.is meðan birgðir endast //Við viljum styðj...
01/04/2026

NÝBURAGJÖF HÝALÍN – Fyrir allra minnstu sælkerana 🍼 🌞
// Skráning á www.hyalin.is meðan birgðir endast //

Við viljum styðja ungar barnafjölskyldur með sérstakri gjöf sem nýtist á fyrstu vikum nýburans. Það er enda nauðsynlegt að nýburar kynnist lífsins lystisemdum sem fyrst; foie gras, pâté, Agen-sveskjum og ítalskri ólífuolíu.

Því höfum við sérhannað einstakan barnasmekk úr Vicuña- og Cervelt-ull, frá Andesfjöllum og Nýja-Sjálandi – að andvirði 30 þúsund krónur. Með honum fylgir sérstök hvítagullshúðuð barnaskál ásamt perlumóðurskeið – að andvirði 20 þúsund krónur.

Skráið ykkur, eða vini ykkar, með því að kíkja á www.hyalin.is í dag!

Takmarkað magn – aðeins meðan birgðir endast. Ekki hika við að tagga nýbakaða foreldra í athugasemdunum.

🌪️Vegna veðurs verður opið frá kl 14-18 í dag 🌪️🌪️We will be open from 14-18 today due to the extreme weather conditions...
26/03/2026

🌪️Vegna veðurs verður opið frá kl 14-18 í dag 🌪️

🌪️We will be open from 14-18 today due to the extreme weather conditions🌪️

🐣 Kæru páskaungar, þá eru glæsilegu handgerðu súkkulaðieggin og súkkulaðihænurnar frá Bonnat fáanleg í verslun okkkar, s...
25/03/2026

🐣 Kæru páskaungar, þá eru glæsilegu handgerðu súkkulaðieggin og súkkulaðihænurnar frá Bonnat fáanleg í verslun okkkar, sum fyllt með dökku súkkulaði en önnur með praline-fyllingu, hreinlega himneskir bitar fyrir bragðlaukana. Þá er bara eftir fyrir þig að velja þinn mola til að taka með í páskafríið. Hér eru bara alvöru hráefni á ferð, kakó, smjör og sykur o.s.frv. – engin leiðinleg aukaefni.

PS. Erum með opið yfir páskana!

🐣 Dear Easter bunnies, we have received the gorgeous Easter eggs and hens from Bonnat, some with dark chocolote minature fillings and other are filled with praline – it is for you to choose which will be your Easter treat. These products are clean and cool, only real materials, chocolate, butter, suger etc. – no harmful additives!

PS. We have normal opening hours over the Easter holidays!

✨ Páskar 2026 ✨ Í ár bjóðum við upp á sannarlega einstök páskaegg frá Maison Bonnat í Voiron, Frakklandi, í þremur tegun...
18/03/2026

✨ Páskar 2026 ✨

Í ár bjóðum við upp á sannarlega einstök páskaegg frá Maison Bonnat í Voiron, Frakklandi, í þremur tegundum.

🥚 Fyrst ber að nefna handgerðu praliné-eggin sem ruku út í fyrra en þau eru úr ekta dökku súkkulaði, fyllt með heslihnetu-praliné, og hjúpuð raunverulegri eggjaskurn. Þau koma í einni stærð.

🍫 Einnig bjóðum við upp á dökk súkkulaðiegg, hol að innan en fyllt með frönsku klassísku "friture" eða litlum súkkulaðimolum í formi fiska, í anda franskrar páskahefðar. Þau koma í tveimur stærðum, 130 gr.og 300 gr.

🐥Loks fáum við dásamlegar dökkar súkkulaðihænur fylltar með frönsku klassísku "friture" eða litlum súkkulaðimolum í formi fiska, í anda franskrar páskahefðar, og koma í 120 gr. og 170 gr.

👨‍🍳 Eins og allt súkkulaði frá Bonnat eru eggin aðeins gerð úr gæðahráefnum; 𝘨𝘳𝘢𝘯𝘥𝘴 𝘤𝘳𝘶𝘴 kakóbaunum, kakósmjöri, heslihnetum og sykri. Engin ýruefni eða önnur aukaefni.

📍Fáanleg í HYALIN í afar takmörkuðu upplagi – frá 27.mars. Praline-eggin ruku út í fyrra og við erum spennt að bjóða upp á breiðara úrval í ár. Hægt er að tryggja þér eintak með því að taka frá hjá [email protected] 🐣

//

✨ Easter 2026 ✨

This Easter at HYALIN, we’re bringing back a truly unique selection of Easter chocolote celebrations, including our absolute hit eggs from last year 🇫🇷✨

🥚First, we are reintroducing our praliné-filled eggs – delicate handmade chocolate shells hiding a rich, silky praliné centre, made from caramelised nuts in true French tradition. They come in one size

🍫 Next, we are bringing you for the first time dark chocolate eggs, hollow on the inside but filled with the classic French friture, small chocolate fishes, in keeping with the traditional French Easter tradition. They come in two sizes, 130g and 300g.

🐥Finally, we bring you dark chocolate hens, filled with little chocolate fish or friture, in keeping with traditional French Easter. These come in two sizes, 120 gr. and 170 gr.

👨‍🍳Bonnat’s quality chocolate is only made with the finest incredients: 𝘨𝘳𝘢𝘯𝘥𝘴 𝘤𝘳𝘶𝘴 cacao, cacao butter, hazelnuts and sugar. No ultra-processed ingredients.

📍Available at HYALIN from March 27th onwards in very limited stock. You can reserve your creamy and nutty egg, or pure and crunchy hen, at [email protected] 🐣🍫

Verslunin okkar er orðin sneisafull í tæka tíð fyrir konudaginn 🍫
20/02/2026

Verslunin okkar er orðin sneisafull í tæka tíð fyrir konudaginn 🍫

Tilkynning: nú verður líka opið hjá okkur á mánudögum!PSA: we are now also open on Mondays!
28/01/2026

Tilkynning: nú verður líka opið hjá okkur á mánudögum!

PSA: we are now also open on Mondays!

Eru allir tilbúnir fyrir bóndadaginn? Við reddum sælkera- og dekur gjafapökkum milli kl.11-18 💚
22/01/2026

Eru allir tilbúnir fyrir bóndadaginn? Við reddum sælkera- og dekur gjafapökkum milli kl.11-18 💚

Address

Skólavörðustígur 4A
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 11:00 - 18:00
Tuesday 11:00 - 18:00
Wednesday 11:00 - 18:00
Thursday 11:00 - 18:00
Friday 11:00 - 18:00
Saturday 11:00 - 18:00

Telephone

+3545197171

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when HYALIN Reykjavík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share