Borðið

Borðið Hverfisveitingastaður og sælkeraverslun. Hægeldaður matur og dásamlegt bakkelsi, allt gert frá grunni af alúð fyrir fólk á ferðinni
Snap:Bordidverslun
(208)

Borðið er veitingastaður og verslun í hjarta Vesturbæjarins. Við stofnuðum Borðið árið 2015 með það einfalda markmið að bjóða upp á mat eldaðan frá grunni af alúð fyrir fólk á ferðinni; hægan mat með heim. Við bjóðum upp á fjölbreyttan mat úr árstíðarbundnu, fersku hráefni og takmörkum okkur ekki við tilteknar matreiðsluhefðir, tískustrauma eða hráefni. Viðskiptavinir geta svo kippt með sér dýrind

is eftirréttum og bakkelsi í öllum regnbogans litum. Að Borðinu standa Martina og Jón Helgi, Rakel Eva og Friðrik: Tvö pör sem búa vestan lækjar og elska mat og allt sem honum við kemur. Við kynntumst í menntaskóla og matarástin hefur verið rauði þráðurinn í vináttu okkar síðan þá. Sumarið 2015 ákváðum við að stofna hverfisveitingastað og verslun í hjarta Vesturbæjarins fyrir fólk eins og okkur. Fólk sem elskar góðan mat og forðast allar málamiðlanir, en hefur ekki nógu margar klukkustundir í sólarhringnum til að gera góðan mat frá grunni á hverjum degi. Verið velkomin kæru vinir!

Address

Ægisíða 123
Reykjavík
107

Telephone

655 1230

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Borðið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Borðið:

Share