01/06/2026
Takk kærlega fyrir komuna á laugardaginn elsku prjónavinkonur okkar!
Það var margt um manninn og ótal margar fallegar peysur sem við fengum að líta augum.
Nú erum við búnar að draga úr leikjunum og vinningshafi í myndahappdrætti er:
Áslaug Kristinsdóttir, klæðist Einarspeysu hönnuð af Vinda Knits.
Vinningshafi í deilingarkeppni er:
, Ástþrúður Sif Sveinsdóttir, hún klæðist Hrím sjali eftir sjálfa sig ásamt Karla Cape eftir Anne Ventzel.
Þær hafa báðar hlotið 25.000kr gjafabréf í Storkinn.
Þið sem ekki komust til okkar á laugardaginn, vegna búsetu eða annarra ástæðna bjóðum við veglegan kaupauka í netverslun meðan birgðir endast. Kaupaukinn bætist sjálfkrafa í körfu þegar verslað er fyrir 15.000kr.
Sjáið allar þessar flottu peysur!