07/06/2026
Gleðilegan sjómannadag! ⚓
Í dag viljum við þakka öllum sjómönnum fyrir þeirra mikilvæga framlag, dugnað og elju. Á bak við hvert fiskflak og hverja máltíð úr hafinu liggur ómetanleg vinna sem við erum stolt af að byggja okkar starfsemi á.
Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegs dags og farsældar á sjó og landi.
Kv. Aldan fisk og sælkeraverslun